Tollfrelsi vara sem upprunar eru í Úkraínu
Frumkvæðismál (2306095)
Efnahags- og viðskiptanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
08.06.2023 | 68. fundur efnahags- og viðskiptanefndar | Tollfrelsi vara sem upprunar eru í Úkraínu Jóhann Páll Jóhannsson, Guðbrandur Einarsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun: „Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata harma að meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar hafi ekki verið tilbúinn að leggja fram frumvarp um framlengingu tollfrelsis af vörum frá Úkraínu. Tveir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands hafa lýst stuðningi við framlengingu úrræðisins og utanríkisráðherra hefur sagt það vonbrigði að efnahags- og viðskiptanefnd ætli ekki að afgreiða málið fyrir þinglok. Undirrituð taka undir þessa yfirlýsingu ráðherrans. Úkraínumenn berjast um þessar mundir fyrir tilverurétti sínum og um leið fyrir frelsi, lýðræði og mannréttindum í Evrópu. Miklu skiptir að áfram verði samstaða um það á Íslandi að styðja Úkraínu með ráðum og dáð.“ |